Rannsóknir í kynjafræði

UISH – Viðbrögð við kynferðislegri áreitni á vinnustöðum

Kynferðisleg áreitni ógnar heilsu og velferð starsfólks á norrænum vinnumarkaði og viðheldur kynjamisrétti. Rannsóknin er liður í norrænu rannsóknarverkefni um viðbrögð við kynferðislegri áreitni innan vinnustaða, með sérstaka áherslu á lögregluna. Rannsóknir hafa leitt í ljós að kynferðisleg áreitni viðgengst innan lögreglunnar á Íslandi. (sjá vinnumenning lögreglunnar).

Markmið verkefnisins er að þróa þjálfun sem tekur mið af vinnumenningu lögreglunnar og valdeflir starfsfólk til þess að bæta starfsumhverfi sitt og stemma stigu við kynferðislegri áreitni á vinnustaðnum. Þjálfunin byggir á aðferðum sem þróaðar hafa verið á Norðurlöndunum og sérstök áhersla er á gagnvirkt nám, aukna samkennd og samtal á milli starfsfólks. Við þróun þjálfunarinnar verður leitast við að auka skilning og þekkingu á viðbrögðum starfsfólks á aðgerðum gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum, sérstaklega innan lögreglunnar.

Rannsóknin er liður í því að stuðla að inngildandi vinnuumhverfi innan lögreglunnar, en vonir eru bundnar við að þjálfunin verði í lok rannsóknarinnar orðinn hluti af skyldubundinni menntun lögreglumanna og annarri menntun sem veitir aukin starfsréttindin innan lögreglunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar verða einnig mikilvægt innlegg í rannsóknir á kynferðislegri áreitni á vinnustöðum, og þá sérstaklega hvernig megi stemma stigu slíkri áreitni innan lögreglunnar.

Rannsóknarteymið

Finnborg S. Steinþórsdóttir, aðjúnkt í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild HÍ. Gyða M. Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild HÍ. Laufey Axelsdóttir, nýdoktor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild HÍ. 

Fjármögnun og samstarfsaðilar

Rannsóknin er styrkt af Nordforsk.

Rannsókn tengist námi í kynjafræði og stjórnmálafræði

Útgefið efni um rannsóknina

Heimsmarkmið sem tengjast rannsókninni

  • 3. Heilsa og vellíðan
  • 4. Menntun fyrir alla
  • 5. Jafnrétti kynjanna
  • 8. Góð atvinna og hagvöxtur
  • 17. Samvinna um markmiðin
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Ads