Rannsóknir í félagsfræði
Gallar í fjölbýlishúsum
Rannsóknarverkefnið fjallar um algengi og eðli galla í nýbyggðum íbúðum á Íslandi. Við einblínum á reynslu íbúðareigenda, ábyrgð húsbyggjenda og eftirlitshlutverk opinberra aðila.
Rannsóknarverkefnið hlaut styrk úr Aski mannvirkjarannsóknasjóð. Á vefsíðu Asks segir að sjóðurinn „… veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar. Áherslur sjóðsins snúa einkum að samfélagslegum áskorunum í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum í mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors.“
Undanfarin ár hafa borist fjölmargar fréttir af byggingargöllum í nýjum íbúðarhúsnæðum. Slík vandamál geta haft veruleg áhrif á fjárhag, öryggi og lífsgæði íbúðareigenda.
Rannsóknarteymið
Stefán Hrafn Jónsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í rannsóknarteyminu eru einnig Víðir Smári Petersen prófeesor í Lagadeild, Már Mixa dósent í Viðskiptafræðideild, Eyþór Rafn Þórhallsson dósent í HR og Breki Karlsson formaður Neytenendasamtakanna. Arnar Eggert Thoroddsen í félagsfræði var starfsmaður verkefnsins.
Fjármögnun og samstarfsaðilar