Ráðstefna Þjóðarspegilsins  |  30. október 2026

Þjóðarspegillinn

Þjóðarspegillinn er árleg ráðstefna Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar og nýsköpun. Ráðstefnan er opin öllum og er hugsuð sem lifandi samtal við samfélagið innan sem utan veggja háskólans. Á ráðstefnunni kynnir fræðafólk, sérfræðingar,  framhaldsnemar fræðileg og hagnýt erindi sem varpa ljósi á samfélagið út frá ólíkum sjónarhornum. 

Markmið Þjóðarspegilsins er að efla miðlun félagsvísindalegrar þekkingar, skapa rými fyrir gagnrýna og uppbyggilega umræðu og stuðla að dýpri skilningi á íslensku samfélagi. 

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Staðsetning ráðstefnu

Ráðstefnan er haldin í húsakynnum Háskóla Íslands, sjá hér myndir af byggingum og staðsetningu stofa:

Ágrip

Þátttakendur eru hvattir til að senda inn skýr og hnitmiðuð ágrip að erindum sem falla að markmiðum Þjóðarspegilsins. Ágrip geta byggt á niðurstöðum empírískra rannsókna, þróun kenninga eða hugtaka eða kerfisbundinni samantekt og metagreiningu.  

Leiðbeiningar um innsend ágrip

Titill: Titill á að lýsa viðfangsefni erindisins með skýrum hætti. Hann ætti að vera hnitmiðaður og lýsandi. 

Inngangur eða bakgrunnur: Gerið stuttlega grein fyrir samhengi viðfangsefnisins. Hvers vegna er það mikilvægt,  hvaða þekkingu, umræðu eða samfélagslegu álitaefni tengist það? 

Markmið eða rannsóknarspurning: Skýrið meginmarkmið erindisins, rannsóknarspurningu eða þann fræðilega vanda sem fjallað er um. 

Aðferð, nálgun eða efniviður: Lýsið stuttlega þeirri aðferð, fræðilegu nálgun, gögnum eða heimildum sem erindið byggir á. Í fræðilegum eða kenningalegum erindum má hér gera grein fyrir hugtökum, kenningum eða röksemdafærslu. 

Niðurstöður, framlag eða meginrök: Gerið grein fyrir helstu niðurstöðum, væntanlegu fræðilegu framlagi eða meginrökum erindisins. Forðist almennar setningar á borð við „niðurstöður verða kynntar“ og reynið fremur að skýra hvað erindið leggur til umræðunnar. 

Ályktanir og samfélagslegt gildi: Þessi liður er valkvæður. Setjið hann inn ef þið viljið draga fram þýðingu og samfélagslegt gildi erindisins í ágripinu. T.d. hvaða þýðingu hafa niðurstöður, rök eða fræðileg nálgun fyrir félagsvísindi, faglega umræðu, stefnumótun eða samfélagið almennt?

Lengd ágripa skal vera á bilinu 170 – 250 orð.

Hver höfundur flytur aðeins eitt erindi, þó hann sé meðhöfundur að öðrum erindum.

Hver einstaklingur getur að hámarki verið höfundur/meðhöfundur að þremur ágripum.

Til flutningsmanna erinda

Gert er ráð fyrir 20 mínútum fyrir hvert erindi, það er um það bil 15 mínútur í flutning erindis og 5 mínútur í spurningar og umræður.Vinsamlegast virðið þann tíma sem er ætlaður hverju erindi svo dagskrá málstofunnar raskist ekki.

Best er að koma með glærukynningu á USB-kubbi. Einnig er gott að hafa kynninguna tiltæka á fleiri en einum stað, til dæmis í tölvupósti eða skýjaþjónustu, ef tæknileg vandamál koma upp.

Til að málstofan geti hafist á réttum tíma eru flutningsmenn beðnir um að mæta að minnsta kosti 10 mínútum áður en málstofan hefst. Þá gefst tími til að koma kynningum fyrir, prófa skjávarpa og ganga úr skugga um að allt sé tilbúið.

Mælt er með að vista glærur bæði sem PowerPoint-skrá og PDF-skjal, ef uppsetning eða letur breytist milli tölva.
Flutningsmenn eru beðnir um að kynna sig fyrir málstofustjóra við komu í stofu. Málstofustjóri heldur utan um tímann og sér til þess að málstofan fylgi dagskrá.

Óskir um sérmálstofur

Ef óskir eru um skipuleggja eigin málstofu, eða sérmálstofu, má skrá það í umsóknarkerfið þegar ágrip er sent með því að tilgreina titil málstofu sem hópur hefur komið sér saman um og fundarstjóra. Allir sem taka þátt í sér málstofu senda sjálfir inn sín ágrip. Sá sem tekur þátt í sér málstofu hakar við sérmálstofu undir liðnum „efnisflokkar“ í umsóknakerfinu, þar skrifar hann svo heiti málstofu og nafn fundarstjóra. Skipuleggjendur ráðstefnunnar geta ef hentar dagskránni bætt erindum í sérmálstofur. 

Mikilvægar dagsetningar:

– Tekið á móti ágripum: Frá 5. ágúst til 7. september
– Niðurstaða ritrýni: Í byrjun október
– Dagskrá birt: 15. október
– Ráðstefna Þjóðarspegilsins: 30. október

Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi ráðstefnuna, sendu þá póst á netfangið: thjodarspegillinn@hi.is

  • Dagar
  • Klukkustundir
  • Mínútur
  • Sekúndur
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Thjodarspegill_stubbur 2 2021
Ads