Rannsóknir í stjórnmálafræði
Íslenska kosningarannsóknin (ÍSKOS)
Íslenska kosningarannsóknin (ÍSKOS) er viðamikil rannsókn um íslenska kjósendur, stjórnmálaflokka og stjórnmálaviðhorf, sem hefur verið framkvæmd við hverjar Alþingiskosningar frá 1983. Í dag gegnir ÍSKOS burðarhlutverki í rannsóknum á íslenskum stjórnmálum og samfélagi.
Ólafur Þ. Harðarson prófessor emerítus í stjórnmálafræði vann frumkvöðlastarf í uppbyggingu innviða í íslenskum félagsvísindum þegar hann hleypti kosningarannsókninni af stokkunum árið 1983. Með árunum hefur umfang og rannsóknateymi ÍsKos stækkað, er hún nú í formi spurningakannana sem eru lagðar fyrir kjósendur eftir kosningar, fyrir kjósendur á meðan á kosningabaráttu stendur og fyrir frambjóðendur stjórnmálaflokka í kjölfar Alþingiskosninga.
Rannsóknarteymið
Eva H. Önnudóttir leiðir ÍSKOS, en ásamt henni eru í stjórn ÍSKOS Agnar Freyr Helgason, Hulda Þórisdóttir, Jón Gunnar Ólafson og Ólafur Þ. Harðarson, öll við stjórnmálafræðideild HÍ. Þau eru um þessa mundir að vinna að bók um kosningarnar 2021 sem mun koma út hjá Háskólaútgáfunni og ber vinnuheitið Lognmolla í ólgusjó.
Útgefið efni um rannóknina
Byggt á gögnum ÍSKOS hafa verið birtar fjölmargar greinar og bækur, sem hafa meðal annars fjallað um breytingar á málefnaásum íslenskra stjórnmála, kosningaþátttöku, ánægju með virkni lýðræðis, pólitískt traust, tilkoma nýrra flokka og margt fleira. T.d. kom út árið 2024 bókin Lognmolla í ólgusjó: Alþingiskosningarnar 2021 og kjósendur í áranna rás, og 2021 bókin Electoral Politics in Crisis sem var m.a. um afleiðingar efnahagshrunsins á íslensk stjórnmál.
Sjá lista yfir ritrýndar útgáfur um rannóknina hér
Fjármögnun og samstarfsaðilar
Innviðasjóður og rannsóknasjóður RANNÍS, Alþingi og Rannsóknarsjóður HÍ
Samfélagsskjár ÍSKOS
Samfélagsskjár ÍSKOS er gagnaleikvöllur þar sem hægt er velja og greina valdar niðurstöður úr kjósendakönnunum ÍSKOS frá 1983 með gagnvirkum hætti á vefnum.
Gögn ÍSKOS á Gagnís
Gögn kjósendakannana ÍSKOS eru aðgengileg þeim sem hafa áhuga á ítarlegri greiningum á vef > GAGNÍS
