Rannsóknir í viðskiptafræði
Leigumarkaðurinn á Íslandi
Rannsóknin kannar tvísýnleika (e. precarity) fólks á leigumarkaði, í húsnæðisaðstæðum sem flestir Íslendingar kjósa að vera ekki í til langframa. Þrátt fyrir að séreignarstefna sé ríkjandi hjá almenningi og stjórnvöldum, þá jókst fjöldi einstaklinga á leigumarkaði eftir hrunið 2008. Það hlutfall hefur staðið nánast óbreytt síðan þá, þrátt fyrir stöðugan efnahagsvöxt, að undanskildu tímabili Covid-19 faraldursins.
Skoðað er af hverju svo hátt hlutfall einstaklinga sé enn á leigumarkaði og hvaða aðgerðir séu nauðsynlegar til þess að breyta þeirri þróun. Einn veigamikill þáttur tengist ferðamennsku. Fjöldi íbúða í langtímaleigu hefur dregist saman með tilkomu Airbnb skammtímaleigu fyrir ferðamenn, sem veitir leigusölum í flestum tilvikum miklu betri tekjur. Samhliða því hefur fjöldi nýrra Íslendinga, sem eru af erlendu bergi brotnir, aukist mikið vegna atvinnutækifæra í ferðamannageiranum. Fæstir hafa annan kost en að leigja sér íbúð, í það minnsta í fyrstu. Því hefur framboð á leiguhúsnæði minnkað og eftirspurn aukist.
Þó svo að laun hafi hækkað að raunvirði undanfarin ár þá hefur hækkun húsnæðisverðs verið enn hærri. Með hækkandi húsnæðisverði hafa möguleikar fólks á því að kaupa sitt eigið húsnæði því enn minnkað samanborið við það sem áður var. Hætta er því að skapast hérlendis, sem er í takti við þróunina víða erlendis, að hér myndist svokölluð „leigukynslóð,“ sem á ensku nefnist Generation Rent. Slíkt getur valdið vanlíðan og óöryggi hjá fjölda einstaklinga.
Þessi rannsókn miðar að því að draga saman upplýsingar og rannsaka möguleika á því að sporna við slíkri þróun.
Fjármögnun og samstarfsaðilar
Mobility and Transnational Iceland (Rannís) og Rannsóknarsjóður Háskóla Íslands
Heimsmarkmið sem tengjast rannsókninni
- 1. Engin fátækt
- 2. Ekkert hungur
- 3. Heilsa og vellíðan
- 5. Jafnrétti kynjanna
- 6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
- 10. Aukinn jöfnuður
- 16. Friður og réttlæti
- 17. Samvinna um markmiðin
Rannsóknarteymið
Már Wolfgang Mixa dósent í viðskiptafræði við HÍ
Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði við HÍ
Anna Lísa Rúnarsdóttir mannfræðingur
Um nám í viðskiptafræði
Fréttir sem tengjast rannsókninni
- RÚV: Silfrið
- RÚV: Það er verið að leigja fólki hreysi
- Stundin: Stjórnvöld hafa hlúð að tekjuháum og millistétt á kostnað leigjenda
- Fréttabladid.is: 40 prósent ná ekki að eignast húsnæði