Rannsóknir í mannfræði
Æska Gíneu Bissá – áskoranir og tækifæri
Um er að ræða röð rannsókna sem skoða áskoranir ungs fólks í Gíneu-Bissá en rúmlega 60% íbúanna eru yngri en 25 ára eins og víðar í Afríku sunnan Sahara. Fyrsta skrefið var að leggja spurningalista fyrir rúmlega tvö þúsund 15-17 ára gamla nemendur í skólum höfuðborgarinnar Bissá í samstarfi við Rannsóknir og greiningu/Planet Youth. Sú nálgun gerir mögulegan samanburð gíneanskra unglinga við íslenska og evrópska jafnaldra hvað varðar meðal annars áfengisneyslu, reykingar, notkun vímugjafa, reynslu af ofbeldi og afbrotum, afstöðu til skólans og framtíðaráforma.
Auk þessa beinast rannsóknirnar að ójöfnuði meðal ungs fólks, aðgengi þeirra að veraldarvefnum og notkun félagsmiðla. Í nóvember og desember 2022, var lagður spurningalisti fyrir rúmlega 2,000 nemendur í sex háskólum í Bissá, að hluta til með svipaðar áherslur en aðlagaðar að markhópnum. Í rannsóknunum er einnig stuðst við eigindlega aðferðafræði til að varpa sem fjölbreyttustu ljósi á aðstæður ungs fólks í landinu, þar með talið áhrifum Covid á skólanemendur, unglinga sem eru utan skóla og Kóranskóladrengi sem lifa af betli.
Rannsóknirnar fjallar um æsku sem er að finna sér farveg í lífinu og er að kljást við margs konar áskoranir. Niðurstöður hafa verið kynntar á fundum og ráðstefnum í Bissá, meðal annars með stjórnvöldum, skólastjórum, kennurum, alþjóðlegum stofnunum og ungu fólki. Rannsóknarhópurinn hvetur til stefnumótunar um framtíð ungs fólks sem byggja á grunni rannsóknarniðurstaðna um þær áskoranir og tækifæri sem það stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að vinna með því að lausnum.
Auk þess veita rannsóknirnar tækifæri fyrir kennara og nemendur að kynnast aðstæðum samstarfsaðilanna á gagnkvæman hátt.
Fjármögnun og samstarfsaðilar
- Fjármögnun frá Rannsóknarsjóði Háskóla Íslands og Erasmus+
- University Jean Piaget; Instituto Nacional de Estudos e Pesquisa (INEP)
- Universidade Lusófona Guiné-Bissau; Universidade Amilcar Cabral
- Universidade Colinas de Boé; Escola Politécnico Tchico Té
- Universidade Católica
- Háskóli Íslands
- Planet YouthRannsóknir og greining
- Háskólinn í Reykjavík.
Útgefið efni um rannsóknina
- Equality of opportunity: Social determinants of university aspiration amongst school-attending adolescents in Bissau, Guinea-Bissau (2023).
- Adolescents amid emerging COVID-19 pandemic in Bissau, Guinea-Bissau: a qualitative study (2022).
- Impact of the COVID-19 pandemic on the life of Bissau-Guinean religious (Quranic) schoolboys during a state of emergency: a qualitative study (2021).
- Public or private school? Determinants for enrolment of adolescents in Bissau, Guinea-Bissau. International Journal of Educational Research (2021)
- Social determinants of narcotics use susceptibility among school-attending adolescents in Bissau, Guinea-Bissau: a cross-sectional analysis (2021)
- Use of digital technology among school-attending adolescents in Bissau, Guinea-Bissau (2020)
Heimsmarkmið sem tengjast rannsókninni
- Heimsmarkmið nr. 3. Heilsa og vellíðan
- Heimsmarkmið nr. 4. Menntun fyrir alla
- Heimsmarkmið nr. 5. Jafnrétti kynjanna
- Heimsmarkmið nr. 8. Góð atvinna og hagvöxtur
- Heimsmarkmið nr. 9. Nýsköpun og uppbygging
- Heimsmarkmið nr. 10. Aukinn jöfnuður
- Heimsmarkmið nr. 16. Friður og réttlæti
- Heimsmarkmið nr. 17. Samvinna um markmiðin
Rannsóknarteymið
Aladje Balde, rektor Jean Piaget háskóla og forseti Lýðheilsustofnunar Gíneu-Bissá (INASA), Fatou N´dure Baboudóttir, doktorsnemi í þróunarfræðum við HÍ, Geir Gunnlaugsson barnalæknir og prófessor emerítus í hnattrænni heilsu við HÍ, Hamadou Boiro, doktorsnemi í mannfræði við HÍ og rannsakandi við Miðstöð félagsvísinda í Bissá (INEP), Jon Edmund Bollom, prófessor í mannfræði, Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við HÍ , Zeca Jandi doktorsnemi í félagsfræði við Universidade Federal de Bahia, Salvador, Brasilíu og rannsakandi við Miðstöð félagsvísinda í Bissá (INEP), Stefán Hrafn Jónsson, félagsfræðingur og forseti Félagsvísindasviðs HÍ, William Gomes Ferreira vararektor Jean Piaget háskóla