Viðskiptafræði – endurskoðendur, samkeppnishæfni og fjármálalæsi

Skýjalausnir og gerfigreind – viðskiptafræðileg skilgreining til greiningar á samkeppnishæfni

Undirstöður viðskiptafræðilegrar greiningar á endimörkum fyrir­tækja er að finna í tveimur meginkenningum. Kenningu um við­skipta­kostnað (e. Transaction cost theory) annars vegar og hins vegar kenningu um aðfanga miðaða sýn (e. Resource based view of the firm). Kenningin um viðskiptakostnað skýrir hvaða fram­leiðslu- og viðskiptaferlar falla innan endimarka fyrirtækja í stað þess að falla utan þeirra og tilheyra markaði. Kenningin um aðfangamiðaða sýn metur getu fyrirtækja til að skipuleggja framleiðslu- og viðskiptaferla fyrirtækis þess til þess að viðhalda eða mynda forskot á þá samkeppni sem önnur fyrirtæki eða markaðir veita. Án þess forskots hefur fyrirtæki engin endimörk, þ.e.a.s. viðskipta- og framleiðsluferlar þess flytjast annað hvort til samkeppnisaðila eða ytri markaðar.

Í þessari grein eru framangreindar kenningar notaðar til að skilgreina kenningaramma (e. Theoretical framework) sem nýtist til að greina áhrif aukinnar sjálfvirkni vegna tækni eins og gerfi­greindar og útvistunar framleiðslu- og viðskiptaferla í skýja­lausnum. Hröð þróun þessarar nýlegu tækni vekur upp klassískar viðskiptafræðilegar spurningar um hver séu endimörk fyrirtækja í nútíð og hvernig spá megi fyrir um þróun þeirra til framtíðar litið.

Ársæll Valfells og Gísli R. Ragnarsson

Viðhorf endurskoðenda til endurskoðunarnefnda

Höfundar hafa á undanförnum árum stundað rannsóknir á störfum og umfangi endurskoðunarnefnda. Þessi nýja rannsókn snýr að viðhorfum endurskoðenda til endurskoðunarnefnda og störfum þeirra m.t.t. endurskoðunar. Rannsóknin var unnin í sam­vinnu við  félagsmenn innan Félags löggiltra endurskoðenda (FLE) og með stuðningi frá félaginu. Endurskoðunarnefndir eru einu nefndir fyrirtækja sem eru lögskipaðar og má ætla að lög­gjafinn telji mikilvægi þeirra því mikið í endurskoðunarferli fyrir­tækja. Endurskoðendum er skylt að hafa samskipti við endur­skoðunarnefndir við framkvæmd endurskoðunar. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferðafræði þar sem gerð var spurninga­könnun meðal félagsmanna FLE um viðhorf og samskipti endur­skoðenda og endurskoðunarnefnda hjá einingum tengdum almanna­hagsmunum. Með rannsókninni fékkst heildarsýn endur­­skoðenda á samskiptum þeirra við endurskoðunarnefndir við framkvæmd endurskoðunar og gerð grein fyrir veikleikum sem og styrkeikum þeirra í samskiptum við nefndirnar og nýta má þá vitneskju inn í skipulagningu endurskoðunarinnar.   Nýsköpunargildi verkefnis er nokkurt þar sem rannsóknin er sú fyrsta sinna tegundar hér á landi þar sem löggiltir endur­skoðendur eru spurðir út í starf endurskoðunarnefnda. Jafnframt nær rannsóknin til starfsumhverfis nefndanna sem og samskipta við stjórn og endurskoðendur. Nýta má svo niðurstöðurnar við að útfæra nýja verkferla og/eða þróa góða stjórnhætti hjá fyrir­tækjum.

Jón Snorri Snorrason og Einar Guðbjartsson

Gender difference in financial literacy

We examine gender difference in financial literacy. Why women appear to be less financial literate than men, may relate to their different biological structure. Such trivial argument would have to be seriously supported although some literature exists on the matter. However, the reason could also be that their social status differs from males. Social role theory has often been used to explain differences between males and females in different situations and literature where this theory is used is rich, both in social science and gender studies. Indeed, most research indicates that women are less financially literate than men, often attributed to social factors. We therefore ask whether gender difference in financial literacy is present in Iceland, the most gender equal country in the world. If financial literacy is based on social norms and issues, gender difference in financial literacy should be less in countries like Iceland where women are highly economically empowered. Using a representative sample from the Icelandic population and controlling for a host of factors we find women to be less financial literate than men despite strong gender equality in Iceland.

Sigurður Guðjónsson

Event Details
  • Start Date
    01/11, 2019 15:00
  • End Date
    01/11, 2019 16:45
Höfundar erinda
Lektor / Assistant Professor
Háskóli Íslands / University of Iceland
Dósent
Háskólinn á Bifröst / Bifröst University
Sérfræðingur / Specialist
Dósent / Associate Professor
Háskóli Íslands / University of Iceland
Lektor / Assistant Professor
Háskóli Íslands / University of Iceland
Event Details
  • Start Date
    01/11, 2019 15:00
  • End Date
    01/11, 2019 16:45